04.03.1922
Neðri deild: 14. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 456 í B-deild Alþingistíðinda. (316)

10. mál, verslunarskýrslur

Fjármálaráðherra (M. G.):

Þetta frv. sem hjer liggur fyrir, er komið frá Ed. og var það samþykt þar með einni orðabreytingu í síðustu gr., sem aðeins er til þess gerð að skýra nánar, hvað í frv. fólst eins og það kom frá stjórninni.

Jeg vona, að frv. fái greiðan gang í deildinni og leyfi mjer að leggja til, að því verði vísað til allsherjarnefndar að lokinni þessari umr.