24.02.1922
Neðri deild: 8. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 28 í B-deild Alþingistíðinda. (32)

Stjórnarfrumvörp lögð fram

forsætisráðherra (J.M.):

Jeg leyfi mjer hjer með að leggja fram frv. um breyting á lögunum um bann gegn aðflutningi á áfengi. Því mun hafa verið útbýtt í deildinni í gær og hv. þm. því búnir að sjá það. Jeg sje enga ástæðu að orðlengja neitt frekar um það núna, fremur en venja er orðin til. Geymi það þangað til það verður til umr. hjer í deildinni.