02.03.1922
Sameinað þing: 4. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 927 í B-deild Alþingistíðinda. (35)

Rannsókn kjörbréfa

Frsm. kjörbrjefanefndar (Magnús Kristjánsson):

Kjörbrjefanefnd hefir fengið til athugunar kjörbrjef háttv. þm. S.-Þ., Ingólfur Bjarnarson, og hefir ekkert fundið við það að athuga, því það er að öllu leyti vel úr garði gert. Leggur nefndin því til, að kosning háttv. þm. S.-Þ. verði tekin gild.