15.03.1922
Neðri deild: 23. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 506 í B-deild Alþingistíðinda. (455)
37. mál, dýraverndun
Magnús Guðmundsson:
Jeg kom ekki fram með nein mótmæli gegn frv. við fyrri hl. umr., heldur tók aðeins fram, að það gæti ekki náð til Drangeyjar. Það stoðar ekkert fyrir háttv. 1. þm. Eyf. (St. St.) að halda því fram, að nýrri lög hafi fremur gildi en eldri í þessu efni. Ef til eru tvenn lög um sama efni, sem ekki eru í samræmi, eru það sjerefnislögin sem gilda. Jeg þori þess vegna óhræddur að leggja þetta atriði undir dóm hæstv. ráðherra, sem verður forsætisráðherra. Lögin geta aldrei náð til Drangeyjar.