25.03.1922
Efri deild: 29. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 513 í B-deild Alþingistíðinda. (470)

37. mál, dýraverndun

Forsætisráðherra (S. E.):

Það er almenn skýringarregla, að almenn lög víki fyrir sjerlögum, þegar ákvæði þessara laga rekast á eða skerast, ef jeg má viðhafa svo matematiskt orðatiltæki um þetta atriði. En sje vafi um þetta atriði nú, má eins og jeg tók fram áðan koma með brtt. við 3. umr., er felli eldri lögin, sem hjer er að ræða um, úr gildi.