11.04.1922
Efri deild: 42. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 514 í B-deild Alþingistíðinda. (476)

37. mál, dýraverndun

Sigurður Jónsson:

Jeg sakna þess, að hæstv. forsrh. (S. E.) er ekki í deildinni, því að það hefði verið æskilegt að fá upplýsingar um það hjá hæstv. stjórn, hvaða reglur um aflífun búpenings hún hefði hugsað sjer að setja í reglugerðina. Því jeg fyrir mitt leyti er á móti því, að sett sjeu t. d. ákvæði um það, að búpening skuli einungis aflífa með skoti.