05.04.1922
Efri deild: 37. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 578 í B-deild Alþingistíðinda. (581)

15. mál, útflutningsgjald

Sigurður Hjörleifsson Kvaran:

Mjer þykir rjett, að máli þessu sje skotið til nefndar, því jeg býst við, að það þurfi eigi að tefja það lengi.

Vil jeg því gera að tillögu minni, að því verði vísað til fjárhagsnefndar.