27.02.1922
Neðri deild: 10. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 596 í B-deild Alþingistíðinda. (623)

19. mál, seðlaútgáfa Íslandsbanka

Pjetur Ottesen:

Mig langar til að gera þá fyrirspurn til hæstv. stjórnar og þess bankaráðsmanns, sem sæti á hjer í deildinni, hvað því valdi, að Íslandsbanki hefir ekki verið látinn lækka útlánsvexti sína. Landsbankinn hefir nú fyrir alllöngu gert þetta, og verður því skilmálalaust að krefjast þess, að Íslandsbanki geri hið sama. Hlýt jeg að mælast til að fá tafarlaust svar við þessari fyrirspurn minni.