19.04.1922
Efri deild: 46. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 668 í B-deild Alþingistíðinda. (674)

78. mál, eftirlit með skipum og bátum

Einar Árnason:

Jeg ætla ekki að taka að mjer neina framsögu í þessu máli, en þar sem framsögumaður (K. E.) er ekki viðstaddur, vil jeg leyfa mjer fyrir nefndarinnar hönd að leggja það til, að háttv. deild samþykki frumvarpið eins og það liggur fyrir.