03.03.1922
Neðri deild: 13. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 673 í B-deild Alþingistíðinda. (685)

27. mál, skipting Húnavatnssýslna í tvö kjördæmi

Forsætisráðherra (J. M.):

Mjer þykir leitt, ef jeg hefi verið skilinn svo, að jeg talaði fyrir munn háttv. þm. Dala. (B. J.), er jeg sagði, að þingmenn alment æsktu þess, að þetta þing yrði sem styst, því að jeg ætlaðist ekki til þess. Mjer hefir aldrei dottið það í hug að bera þessum gamla kunningja mínum það á brýn, að áhugi hans beindist í þá átt.