03.03.1922
Neðri deild: 13. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 674 í B-deild Alþingistíðinda. (687)

27. mál, skipting Húnavatnssýslna í tvö kjördæmi

Bjarni Jónsson:

Jeg vil leyfa mjer að þakka hæstv. forsrh. (J. M.) fyrir yfirlýsingu þá, sem hann gaf um það, að þm. Dala. hefði aldrei gerst svo ósvífinn að vilja reka heim þingmennina áður en reynt væri, hvað þeir ættu að sitja lengi eða hvað gera ætti, og mundi jeg á þann hátt vilja bjarga landinu.