03.03.1922
Neðri deild: 13. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 675 í B-deild Alþingistíðinda. (689)

27. mál, skipting Húnavatnssýslna í tvö kjördæmi

Gunnar Sigurðsson:

Jeg veit ekki, hvort mjer muni leyfilegt að lengja umræðurnar, en jeg finn mig knúðan til að leiðrjetta þann mikla misskilning, sem fram hefir komið á orðum mínum, þar sem ræða háttv. 2. þm. Húnv. er algerlega bygð á misskilningi. Jeg skrifaði undir nefndarálitið með fyrirvara, til þess að geta síðar vakið athygli manna á minni fullu skoðun í þessu máli. Hitt hefi jeg aldrei sagt, að jeg mundi leggjast á móti þessu máli. Það er fullkominn misskilningur.