24.03.1922
Efri deild: 28. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 680 í B-deild Alþingistíðinda. (703)

27. mál, skipting Húnavatnssýslna í tvö kjördæmi

Frsm. (Sigurður Hjörleifsson Kvaran):

Jeg sje ekki ástæðu til að deila um þetta mál við háttv. 4. landsk. (G. G.). Það væri frekar óeðlilegt, þar sem við báðir munum greiða atkvæði með frv. Það er aðalatriðið; hitt er aukaatriði, sem óþarft er að standa og deila um.