27.03.1922
Neðri deild: 33. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 702 í B-deild Alþingistíðinda. (770)

70. mál, stækkun verslunarlóðarinnar í Hnífsdal

Flm. (Sigurður Stefánsson):

Jeg þarf engu við að bæta það, sem stendur í ástæðum frv. Síðan þetta kauptún var löggilt árið 1907 hefir það vaxið hröðum skrefum og fólki mjög fjölgað. Eru þar nú 5 verslanir, en þá var þar aðeins ein. Verslunarlóðin er því orðin of lítil og full þörf að stækka hana. Að svo mæltu vona jeg, að háttv. þm. lofi þessu litla frv. orðalaust í gegnum deildina.