03.04.1922
Neðri deild: 39. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 711 í B-deild Alþingistíðinda. (808)

71. mál, kennsla heyrnar og málleysingja

Magnús Guðmundsson:

Jeg vil leyfa mjer að spyrjast fyrir um, hvort frv. þetta muni ekki hafa töluverðan aukinn kostnað í för með sjer vegna fjölgunar skólabarnanna, svo sem til aukinna kenslukrafta, viðbótarbygginga o. fl. Þessu vona jeg að hv. frsm. (Gunn. S.) svari.