03.04.1922
Neðri deild: 39. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 713 í B-deild Alþingistíðinda. (814)

71. mál, kennsla heyrnar og málleysingja

Magnús Guðmundsson:

Eftir þá yfirlýsingu frá háttv. mentmn., að breytingar þessar muni ekki verða til að auka kostnaðinn við skólahaldið, og annars vegar að ekki verði ráðist í aukinn byggingarkostnað, fyr en Alþingi hefði veitt styrk til þess, get jeg fallið frá mótmælum mínum gegn frv.