22.03.1922
Neðri deild: 29. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 79 í B-deild Alþingistíðinda. (87)
1. mál, fjárlög 1923
Frsm. samgmn. (Þorsteinn Jónsson):
Það eru aðeins örfá orð til þess að skýra það, hversvegna samgöngumálanefndin hefir ekki skilað nefndaráliti við þessa umræðu fjárlaganna. Það hefir verið venja, að samgöngumálanefnd gefi út nál. viðvíkjandi samgöngum á sjó. En hún hefir ekki getað gert það nú, meðal annars af því, að skrifari nefndarinnar hefir verið veikur um nokkurt skeið, og auk þess hafa aðrir nefndarmenn haft ýmsum öðrum störfum að sinna, og því eigi getað lokið störfum í samgöngumálanefnd. En jeg skal lofa því, fyrir nefndarinnar hönd, að skila nefndarálitinu fyrir 3. umr.