25.04.1922
Efri deild: 50. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 802 í B-deild Alþingistíðinda. (959)

68. mál, fræðsla barna

Halldór Steinsson:

Mjer þykir þetta alleinkennileg veðrabrigði hjá háttv. nefnd, þar sem brtt. er komin fram fyrir þremur dögum og hún hefir því haft nægan tíma til þess að athuga hana. Það hlýtur því eitthvað annað að liggja á bak við. — Jeg mótmæli því, að málið sje tekið af dagskrá.