29.03.1922
Neðri deild: 35. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 807 í B-deild Alþingistíðinda. (967)
58. mál, atvinna við siglingar
Frsm. (Ólafur Proppé):
Sjávarútvegsnefnd hefir haft þetta mál til meðferðar og leggur hún eindregið til, að það nái fram að ganga með nokkrum örlitlum breytingum, sem hún leggur til, að gerðar verði á því. Brtt. eru á þskj. 149.
Aðalbreytingin frá núverandi lögum er sú, að leyfa mönnum, sem hafa svonefnt „smáskipapróf“, að stýra skipum alt að 60 rúmlesta að stærð, í stað þess að hámarkið var áður 30 rúmlestir. Það er eftirtektarvert, að Alþingi 1915 sást yfir að laga þetta, þegar það endurskoðaði lögin um atvinnu við siglingar. Þá litu menn svo stórt á alt, að eigi hefir þótt ástæða til að sinna þessu. Þá sáu menn ekkert nema botnvörpungana. En nú er þetta breytt. Nú er til fjöldi af vjelbátum og vjelskipum, 30–50 rúmlestir að stærð. Þeim skipum hafa nú engir rjett til að stýra aðrir en þeir, sem tekið hafa „meira próf“ eða farmannapróf. Er þó vitanlegt, að fjöldi er til af mönnum, sem vel eru til þess færir, þótt eigi hafi tekið þetta próf, og það, sem mest er um vert, menn, sem eru kunnugir þessari útgerð, og því fengsælli.
Önnur aðalbreytingin er sú, að eftir frv. á ekki að verða hægt að taka þetta smáskipapróf annarsstaðar en í Reykjavík, en áður var hægt að taka það svo að segja hvar sem var. Þetta ætti að vera trygging fyrir því, að betur væri til prófsins vandað og hægara um góðan undirbúning og annað, þar sem prófið verður undir handarjaðri forstöðumanns stýrimannaskólans.
Aðrar breytingar eru smávægilegar. En óhætt hygg jeg að treysta því, að frv. sje vel úr garði gert, þar sem skólastjóri stýrimannaskólans hefir samið það.
Þörfin á þessum breytingum er mörgum háttv. þdm. kunn. Hinir hafa líka getað eitthvað ráðið af öllu því, sem lagt hefir verið fram á lestrarsal Alþingis um þetta mál.
Loks vil jeg geta þess, að hjer í deildinni er einn háttv. þm., sem var svo framsýnn 1915 að sjá, að þessa breytingu mundi þurfa að gera. Það var háttv. þm. Ak. (M. K.), sem þá var á Alþingi og er enn og á sæti í sjávarútvegsnefnd.
Jeg býst svo ekki við að þurfa að fjölyrða meir um frv., en óska þess að háttv. deild samþykki það ásamt brtt. nefndarinnar.