04.05.1923
Efri deild: 55. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1241 í B-deild Alþingistíðinda. (1032)

80. mál, stofnun landsbanka

Jóhannes Jóhannesson:

Jeg vil aðeins leyfa mjer að benda á það, að ef þetta frv. verður samþykt, þá slær Alþingi þar með því föstu, að laun embættismanna, eins og þau voru ákveðin 1919, sjeu alt of lág. Vænti jeg því, að ekki verði langt að bíða, að þetta verði lagfært.