05.04.1923
Neðri deild: 34. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1254 í B-deild Alþingistíðinda. (1060)
59. mál, atkvæðagreiðsla fjarstaddra manna við alþingiskosningar
Sveinn Ólafsson:
Mjer kom það á óvart, að háttv. allsherjarnefnd skyldi hafa svo mikið á móti till. minni á þskj. 237, úr því að hún vill gefa þeim, sem ekki geta sótt kjörfund, rjett til að kjósa. Mig furðar á því, að hún skuli ekki vilja veita þeim rjett til að sanna forföll eða sjúkleika með vottorði tveggja skilríkra manna, þótt eða þegar þeir ná ekki í vottorð frá hreppstjóra eða lækni; og sjálfsagt er, að þeir fái að neyta atkvæðis síns, að fengnum vottorðum þeirra.
Mjer er vel kunnugt um, að það er víða í sveitum svo erfitt að ná til þessara manna, að oft má heita frágangssök, og trúi jeg því ekki fyrri en jeg tek á því, að hv. deildarmenn vilji meina kjósendum að neyta atkvæðisrjettar með þeim skilyrðum, sem till. mín setur, heldur láti hana fljóta með 1. gr. frv. Tel jeg þetta fyrirkomulag, sem brtt. greinir, allsendis nauðsynlegt og um leið fult eins tryggilegt um sönnun forfallanna sem vottorð hreppstjóra eða læknis, sem oft mundu verða að gefa vottorð eftir sögusögn annara. eða synja um þau.
Þá er í öðrum lið brtt. minnar farið fram á breytingu á 5. gr„ í þá átt að fyrir „1.–5. gr.“ komi: 1.–3. gr. Er það vegna þess, að 5. gr. getur aldrei orðið feld inn í aðallögin og á þar eigi heima. Hefir nefndin líklega ekki athugað þetta.