05.04.1923
Neðri deild: 34. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1256 í B-deild Alþingistíðinda. (1062)

59. mál, atkvæðagreiðsla fjarstaddra manna við alþingiskosningar

Frsm. (Gunnar Sigurðsson):

Jeg var einmitt að biðja um orðið, til þess að leiðrjetta aths. háttv. 1. þm. S.-M. (SvÓ), þegar háttv. samnefndarmaður minn (MG) stóð á fætur. Jeg er samþykkur honum í því, að það getur ekki komið til mála að ganga inn á till. háttv. 1. þm. S.-M.