13.04.1923
Neðri deild: 41. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1273 í B-deild Alþingistíðinda. (1105)

139. mál, fjáraukalög 1923

Þórarinn Jónsson:

Jeg vildi bara gera þá fyrirspurn til hæstv. stjórnar, hvort hún ætli að gera brtt. við frv. þetta. Jeg býst við, að frv. hafi verið svo úr garði gert sem það er nú af sparnaðarástæðum. Hins vegar líst mjer það eðlilegt, að hæstv. stjórn komi fram með brtt., ef hún er hlynt því, að settir verði fleiri liðir. En það hefir mjer skilist á hæstv. forsrh. (SE), að svo myndi vera.