09.03.1923
Neðri deild: 16. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 101 í B-deild Alþingistíðinda. (118)

13. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Magnús Kristjánsson:

Jeg minnist þess ekki, að jeg hafi beðið um orðið, þó að jeg hins vegar ætti ekki að skorast undan að mæla enn nokkur orð í máli þessu. En þar sem jeg þykist vita, að margir muni enn taka til máls, þá væri mjer kærara að geta talað nokkru síðar, til þess að geta svarað fleirum í einu, ef ástæða verður til þess.