20.04.1923
Neðri deild: 46. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1524 í B-deild Alþingistíðinda. (1278)

76. mál, mæling lóða og landa í lögsagnarumdæmi Reykjavíkur

Frsm. (Jón Þorláksson):

Fyrir efni þessa frv. er gerð allrækileg grein í greinargerð við það og nál. allshn., og finn jeg því ekki ástæðu til að segja frekara um málið, nema því aðeins, að einhver háttv. deildarmaður óski nánari skýringa.