27.04.1923
Neðri deild: 51. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1586 í B-deild Alþingistíðinda. (1328)

110. mál, jarðræktarlög

Jón Sigurðsson:

Það hefir orðið að samkomulagi milli mín og háttv. landbn., að jeg taki brtt. mína aftur til 3. umr. og beri mig saman um hana við nefndina. Ber lítið á milli, og getum við því sennilega orðið sammála. Mun jeg því sleppa því að tala um brtt. mína nú.