30.04.1923
Neðri deild: 53. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1593 í B-deild Alþingistíðinda. (1336)

110. mál, jarðræktarlög

Frsm. (Þórarinn Jónsson):

Jeg mun ekki fara mörgum orðum um þetta mál nú. Þess er ekki þörf, því engar nýjar brtt. hafa komið fram. Jeg skal taka fram. fyrir hönd nefndarinnar, að hún hefir borið sig saman við háttv. flm. brtt. á þskj. 420. Nefndin gerir þær brtt. ekki að neinn kappsmáli, en hann hefir gengið inn á það að taka aftur 2. lið brtt.