02.05.1923
Efri deild: 53. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1596 í B-deild Alþingistíðinda. (1343)

110. mál, jarðræktarlög

Jón Magnússon:

Þegar svona merkilegt mál er á ferðinni, þykir mjer hlýða að minnast nokkrum orðum á það. Jeg vænti þess fastlega, að deildin taki greiðlega í þetta mál, svo það nái fram að ganga á þessu þingi. Jeg geri ráð fyrir, að það fari til landbn. Vona jeg, að hv. 1. þm. Húnv. (GÓ) taki það ekki illa upp fyrir mjer, þótt jeg hafi sagt þessi fáu orð.