05.05.1923
Neðri deild: 58. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1639 í B-deild Alþingistíðinda. (1413)

151. mál, eftirlitsmaður með bönkum og sparisjóðum

Jón Þorláksson:

Jeg vil, sem flm. frv., gefa þær upplýsingar, að frv. er flutt eftir beiðni hæstv. forsrh. (SE), svo að frv. mætti koma fyrir í þessari hv. deild. Gat jeg gert þetta með góðri samvisku, því jeg álít, að ef nokkurt frekara eftirlit eigi að vera, þá sje best, að því sje skipað með lögum á þennan hátt. er frv. fer fram á.