09.05.1923
Efri deild: 58. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1665 í B-deild Alþingistíðinda. (1445)

151. mál, eftirlitsmaður með bönkum og sparisjóðum

Jónas Jónsson:

Hæstv. forsætisráðherra (SE) mæltist til þess, að frv. þetta yrði látið fara nefndarlaust gegnum Ed., en jeg mótmæli því, að veitt verði afbrigði frá þingsköpum, og að frv. þetta, sem fer fram á talsverð útgjöld og gerir allmiklar breytingar, verði ekki látið fara í nefnd. Jeg legg því til, að frv. verði vísað til fjárhagsnefndar.