05.05.1923
Neðri deild: 58. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1699 í B-deild Alþingistíðinda. (1510)

5. mál, útflutningsgjald

Frsm. meiri hl. (Magnús Guðmundsson):

Jeg skal ekki fara að hefja kappræður hjer um málið aftur nú. Jeg vísa aðeins til þess, sem jeg hefi áður sagt. En út af því, sem hv. 1. þm. Reykv. (JakM) sagði um fjárlögin í þessu sambandi, verð jeg að minna hann á það aftur, sem hann ekki hefir hrakið, að þar er ekkert áætlað fyrir ca. 1 milj. gjöldum. Býst jeg því við, að flestir sjái, að ekki er mögulegt að samþykkja brtt. á þskj. 539.