05.05.1923
Neðri deild: 58. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1699 í B-deild Alþingistíðinda. (1511)

5. mál, útflutningsgjald

Frsm. minni hl. (Jakob Möller):

Út af þessari einu miljón, sem ekkert á að vera áætlað fyrir, þarf ekki að segja annað en það, að þetta er alveg út í bláinn. Ef hjer er um byggingar að ræða, eða slík fyrirtæki, þá er vitanlegt, að til þeirra á að fá sjerstakt lán. Og um Klepp er það að segja, að stjórnin hefir í rauninni enga heimild til þess að byggja hann fyrir þessa árs fje.