26.03.1923
Neðri deild: 29. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1808 í B-deild Alþingistíðinda. (1643)

43. mál, vegir

Ólafur Proppé:

Vegna veikinda minna hefi jeg ekki haft tækifæri til að koma fram með brtt. við þetta frv. Jeg vil því geta þess til athugunar, að jeg hefi í hyggju að koma fram með brtt. við 3 umr., þess efnis, að vegurinn frá Ísafirði um Breiðdalsheiði og Gemlufallsheiði til Rafnseyrar og frá Bíldudal um Fossheiði að Þorskafjarðarbotni verði tekinn upp í tölu þjóðvega.