17.04.1923
Neðri deild: 44. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1826 í B-deild Alþingistíðinda. (1674)
93. mál, vegir
Frsm. (Lárus Helgason):
Eins og nál. á þskj. 317 ber með sjer, hefir samgöngumálanefnd athugað frv. það, sem hjer liggur fyrir, og leitað álits vegamálastjóra, sem háttv. þm. er kunnugt.
Vegamálastjóri hefir eindregið lagt með því, að frv. verði samþykt, og hefir rökstutt þá tillögu sína, sem kunnugt er. Nefndin hefir komist að sömu niðurstöðu sem vegamálastjóri. Hún viðurkennir þörfina á því, að sýslufjelög þau, sem hjer eiga hlut að máli, losni við viðhald þessara vegakafla og brúa.
Það er kunnugt, að þessir vegakaflar eru óvenjulega mikið notaðir af utanhjeraðsmönnum. Það sannar líka skýrsla vegamálastjóra hvað Flóaveginn snertir og brýrnar á Ölfusá og Þjórsá. Hið sama mun mega segja um vegarkaflann frá Borgarnesi að Haugum, sem brtt. á þskj. 195 á við, sbr. álit vegamálastjóra.
Þar sem nál. á þskj. 317 tilgreinir glöggar ástæður fyrir niðurstöðu nefndarinnar, virðist engin þörf á langri framsögu. Álit nefndarinnar ber með sjer, að hún leggur einróma til, að hv. deild samþykki frv. með brtt. á þskj. 195.