20.02.1923
Neðri deild: 3. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1838 í B-deild Alþingistíðinda. (1701)

23. mál, fjáraukalög 1920 og 1921

Fjármálaráðherra (MagnJ):

Frv. það til fjáraukalaga, sem hjer ræðir um, byggist á landsreikningunum fyrir árin 1920 og 1921 og aths. endurskoðenda við þá. Jeg sje því enga ástæðu til að fjölyrða neitt um það að sinni, en leyfi mjer að leggja það til, að því verði, að umr. lokinni, vísað til fjhn.