28.04.1923
Neðri deild: 52. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1911 í B-deild Alþingistíðinda. (1801)

9. mál, vatnalög

Sveinn Ólafsson:

Jeg býst við, að við tillögumenn getum sætt okkur við, að málið verði ekki tekið á dagskrá fyr en á þriðjudag, ef nál. verður útbýtt á mánudaginn. Tilgangur okkar var aðallega sá að knýja fram álit minni hl., og úr því að því hefir nú verið heitið, getum við vel við unað.