05.05.1923
Neðri deild: 58. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1974 í B-deild Alþingistíðinda. (1821)

9. mál, vatnalög

Frsm. meiri hl. (Sveinn Ólafsson):

Háttv. þm. Dala. (BJ) þarf ekkert að furða á því, þótt jeg vildi gera grein atkvæðis míns. Jeg var á móti brtt. við 2. gr. frv., þegar það var hjer til 2. umr., og er það einnig nú, og stóð upp aðeins til að skýra frá því, hvers vegna jeg er það.