07.05.1923
Efri deild: 57. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1975 í B-deild Alþingistíðinda. (1825)

9. mál, vatnalög

Frsm. (Guðmundur Guðfinnsson):

Jeg tel óþarft að fjölyrða um þetta mál að svo komnu, en jeg lýsi yfir því fyrir hönd nefndarinnar, að hún hefir fallist á breytingar háttv. Nd., enda þótt hún sje eigi allskostar ánægð með þær. Hún álítur það mikilsvert, að frv. nái fram að ganga, og mælir því með því, að það verði samþykt eins og það nú liggur fyrir.