02.03.1923
Efri deild: 8. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 107 í C-deild Alþingistíðinda. (1969)

36. mál, húsaleiga í kaupstöðum landsins

Flm. (Jónas Jónsson):

Þessi athugasemd hv. þm. Seyðf. (JóhJóh) er alveg rjett. Jeg hirti eigi um að geta um það atriði í frv., þar eð jeg ætlaðist til, að ef frv. næði fram að ganga, þá yrði bætt inn í það ákvæði um, að lög þau, er færu í bága við það, væru úr gildi numin.