18.04.1923
Efri deild: 43. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 143 í C-deild Alþingistíðinda. (2020)

19. mál, vitabyggingar

Karl Einarsson:

Hæstv. stjórn hefir gert ráð fyrir, að framkvæmdir þær, sem frv. nefnir, muni kosta ca. 1700000 kr. Þessari upphæð hefi jeg skift niður í brtt. minni á hæsta tímabil, sem frv. nefnir (16 ár). En ef nota þarf meira eitt árið en annað, þá skýtur brtt. mín ekki loku fyrir það, sbr. orðin „nema sjerstaklega standi á“.