28.04.1923
Efri deild: 50. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 230 í C-deild Alþingistíðinda. (2093)

102. mál, bankaráð Íslands

Jónas Jónsson:

Ef það er rjett, að kommúnistamark komi á bændur, ef mokað er í þá fje til jarðræktar og nýbýla, þá ættu allir útgerðarmenn hjer líka að vera kommúnistar, því að í þá hefir verið mokað fje, bæði af háttv. 2. þm. G.-K. og Íslandsbanka.