14.04.1923
Neðri deild: 42. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 271 í C-deild Alþingistíðinda. (2121)

61. mál, samvinnufélög

Frsm. minni hl. (Gunnar Sigurðsson):

Jeg vil ekki eyða löngum tíma til að deila um þetta mál nje fara að endurtaka það, sem sagt var við 2. umr. En jeg get ekki verið fylgjandi brtt. á þskj. 296. Þessi lög eru svo almenns eðlis, að ekki er hægt að skilja eitt sjerstakt hjerað undan þeim; mundu þá og mörg önnur koma á eftir. En hitt vil jeg endurtaka, sem jeg sagði við 2. umr., að bæði jeg og fleiri þeirra, sem til Framsóknarflokksins teljast, eru þess fýsandi, að samábyrgðinni verði hreytt. En að það sje tímabært að gera það nú þegar, er annað mál.