07.05.1923
Neðri deild: 59. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 290 í C-deild Alþingistíðinda. (2142)

58. mál, kosningar til Alþingis

Jón Baldvinsson:

Jeg sje, að hjer eru fram komnar brtt. frá hv. þm. Dala. (BJ). Verði þær samþyktar, þá verður mín till. óþörf. Jeg er að hugsa um að taka aftur b-liðinn í brtt. minni á þskj. 579. Jeg veit ekki, hvor þessara tveggja till. verður fyr borin upp til atkv. Verði till. hv. þm. Dala. (BJ) fyr borin upp og samþykt, þá mun jeg taka mína till. alveg aftur, því jeg get þá vel felt mig við greinina svo orðaða.