30.04.1923
Neðri deild: 53. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 306 í C-deild Alþingistíðinda. (2160)

149. mál, löggiltir endurskoðendur

Forseti (BSv):

Jeg leyfi mjer að mótmæla því, að verið sje að draga nöfn dáinna manna inn í deilur og umræður hjer á Alþingi að nauðsynjalausu. (ÞorstJ: Hv. þm. Dala. (BJ) hóf þennan leik hjer í dag). Mjer er sama hverjir þetta gera, — það á alls ekki við.