05.04.1923
Efri deild: 32. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 527 í C-deild Alþingistíðinda. (2270)

116. mál, friðun á laxi

Sigurður Jónsson:

Jeg sakna þess mikillega, að ekki skuli nú koma skýring á aðalstefnu þessa frv., þar sem greinargerðin gefur litlar upplýsingar um það. Þetta er mjög þýðingarmikið mál fyrir landbúnaðinn, og mjer er kunnugt um það frá gamalli tíð, að menn greindi á um, hvað setja bæri í lög um þetta efni. En við þetta verður þó að sitja. Jeg vona, ef frv. þessu verður vísað til landbn., að fhn. geri henni nánari grein fyrir því, hvað fyrir þeim vakir.