03.04.1923
Efri deild: 30. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 560 í C-deild Alþingistíðinda. (2317)

55. mál, útflutningur hrossa

Guðmundur Guðfinnsson:

Jeg þarf eigi að svara háttv. frsm. (GÓ) miklu. Hann virðist vera nokkuð gjarn á að misskilja. Mjer skildist breyting háttv. Nd. við frv. miða í þá átt að fyrirbyggja, að markaðurinn spiltist við útflutning hrossa.

Ef stjórninni eru gefnar algerlega frjálsar hendur, þá er hætta á, að hún veiti leyfið oftar en brýn nauðsyn ber til, en jeg vil ekki, að leyfið sje veitt nema ekki verði hjá því komist.