11.04.1923
Efri deild: 37. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 565 í C-deild Alþingistíðinda. (2327)

55. mál, útflutningur hrossa

Forseti (HSt):

Mjer hefir borist, auk rökstuddrar dagskrár meiri hl. landbn., svo hljóðandi rökstudd dagskrá frá minni hl. nefndarinnar:

Með því að gera má ráð fyrir, að landsstjórnin, að fenginni heimild, með bráðabirgðalögum, veiti undanþágu frá ákvæðunum um bann gegn útflutningi hrossa á vetrum, ef brýn nauðsyn ber til, tekur deildin fyrir næsta mál á dagskrá.