24.03.1923
Efri deild: 26. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 625 í C-deild Alþingistíðinda. (2385)

72. mál, sameign ríkisjóðs og bæjarsjóðs Vestmannaeyja á Vestmannaeyjajörðum

Karl Einarsson:

Jeg ætla mjer ekki að gera neinar athugasemdir viðvíkjandi ræðu hv. frsm. (GGuðf), en stend aðallega upp til þess að þakka hv. allshn. undirtektir hennar um mál þetta. Jeg gat þess þegar við 1. umr. málsins, að jeg áliti málið eigi svo undirbúið, að jeg byggist við að það yrði leitt til lykta á einu þingi. Jeg skal því taka það fram, að jeg get fallist á niðurstöðu nefndarinnar um að vísa málinu til hæstv. landsstjórnar til frekari undirbúnings.