04.05.1923
Neðri deild: 57. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 685 í C-deild Alþingistíðinda. (2449)

86. mál, mælitæki og vogaráhöld

Þorsteinn Jónsson:

Jeg vil leyfa mjer að þakka hv. allshn. fyrir meðferð hennar á frv., og get jeg lýst yfir því, að við fhn. frv. erum samþykkir till. hennar. Jeg vil vona, að með þessu fyrirkomulagi verði eftirlitið ekki verra en áður, heldur betra og einnig töluvert ódýrara.