24.02.1923
Neðri deild: 5. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 721 í C-deild Alþingistíðinda. (2491)
4. mál, embættaskipun
Magnús Jónsson:
Hæstv. forsætisráðherra (SE) hjelt því fram, að með samsteypu sýslumannaembættanna mundu veljast betri menn til starfanna. Hann gerði ekki nánari grein fyrir þessu, og mjer er það líka ráðgáta. Því til þess að líkindi sjeu til þess, að betri menn fáist, þarf að sýna fram á það, að nýju embættin sjeu betri og eftirsóknarverðari en þau gömlu. En það verða þau ekki, eins og sjá má á því, að launakjörin haldast óbreytt, en embættin verða yfirgripsmeiri.